Snjór í Esjunni

Það er kuldalegt að horfa upp að Esju þennan ágústmorgun.
Það er kuldalegt að horfa upp að Esju þennan ágústmorgun. mbl.is/Hallur Már

Það er kuldalegt að horfa upp að Esjunni þennan ágústmorgun þar sem snjór hefur fallið í efstu lög fjallsins. Lofthiti hefur verið í lægra lagi undanfarið og óhætt að fullyrða að tíðin víðast hvar hafi verið fyrir neðan væntingar landsmanna.

Fólk þarf væntanlega að sætta sig við að ylja sér við myndir af eldgosi því ekki er útlit fyrir að miklar breytingar verði þar á á næstunni, þó einhverstaðar muni hitastig teygja sig í tveggja stafa tölur. 

Veðurvefur mbl.is 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert