FÍ fagnar Þórsmerkurþjóðgarði, Útivist enn óviss

Umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til að undirbúa og meta kosti …
Umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til að undirbúa og meta kosti þess að friðlýsa Þórsmörk og nágrenni sem þjóðgarð á grundvelli laga um náttúruvernd. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ferðafélag Íslands fagnar því að umhverfisráðuneytið íhugi að stofna þjóðgarð í Þórsmörk og nágrenni. Ferðafélagið Útivist hefur aftur á móti ekki tekið afstöðu til hugmyndanna. Útivist hefur áður lagst gegn slíkum áformum en það gæti nú breyst.

Eins og greint var frá í vikunni hefur Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipað starfshóp til að undirbúa og meta kosti þess að friðlýsa Þórsmörk og nágrenni sem þjóðgarð á grundvelli laga um náttúruvernd.

Bregst hann þar við beiðni sveitarstjórnar í Rangárþingi eystra sem lögðu til í maí að ráðuneytið hæfi skoðun á fýsileika þess að friðlýsa Þórsmörk og nágrenni sem þjóðgarð.

Ein af náttúruperlum Íslands

„Við fögnum þessum áformum enda er Þórsmörk ein af perlum íslenskrar náttúru,“ segir Ólöf Kristín Sívertsen, forseti Ferðafélags Íslands (FÍ), í samtali við mbl.is. Félagið fagni jafnframt frumkvæði Rangárþings eystra.

FÍ er með rekstur í Langadal en Ólöf sér ekki fyrir sér að þjóðgarður myndi raska starfsemi félagsins á svæðinu. 

„Við sjáum ekki að þetta eigi eftir að hafa einhver neikvæð áhrif á það sem við erum að gera. Ferðafélagið hefur alltaf náttúruverndarsjónarmið að leiðarljósi í sínum störfum og þetta samræmist okkar sjónarmiðum og því sem við viljum gera í íslenskri náttúru.“

Útivist áður lagst gegn þjóðgarði, en það gæti breyst

Guðfinnur Þór Pálsson, formaður Útivistar, segir að stjórn félagsins eigi eftir að taka afstöðu til hugmyndarinnar.

Útivist, sem rekur Bása á Goðalandi, lagðist vissulega gegn áformum um Þórsmerkurþjóðgarð árið 2021, þá í samhengi hálendisþjóðgarðs. „Þá lagðist Útivist gegn þessu á þeim forsendum að Þórsmörk væri í ágætis málum og náttúruvernd væri sinnt, þó vissulega mætti gera betur,“ segir Guðfinnur í samtali við mbl.is.

„En þessi hugmynd er ný af nálinni. Hún er öðruvísi og gengur út á það að sveitarfélagið ætlar að stofna þjóðgarð og reka þjóðgarð og stjórn Útivistar hefur ekki tekið afstöðu til þess,“ bætir hann við.

Spurður út í sína persónulegu skoðun svarar Guðfinnur:

„Mín persónulega skoðun að Þórsmörk sé í ágætis málum og það þurfa að vera frekar góð rök fyrir því ef það á að stofna þjóðgarð þar.“

Forseti FÍ segir Þórsmörk vera eina af náttúruperlum landsins.
Forseti FÍ segir Þórsmörk vera eina af náttúruperlum landsins. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert