Handtekinn grunaður um stunguárás

Lögregla handtók einstaklinginn í gærkvöldi.
Lögregla handtók einstaklinginn í gærkvöldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi einstakling sem grunaður er um að hafa stungið annan með hnífi í miðborg Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Í tilkynningunni kemur fram að málið sé í rannsókn og að ekki sé hægt að gefa upp frekari upplýsingar að svo stöddu.

Eins og mbl.is greindi frá í nótt var mik­ill viðbúnaður í miðborginni rétt fyr­ir miðnætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert