Sextán ára í gæsluvarðhald til 30. ágúst

Meðal annars er ung stúlka í lífshættu eftir árásina.
Meðal annars er ung stúlka í lífshættu eftir árásina. mbl.is/Ólafur Árdal

Sextán ára piltur var í kvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. ágúst á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Gæsluvarðhaldið er sagt í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í miðborginni í gærkvöld. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 

Grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni 

„Pilturinn er grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi í miðborginni í gærkvöld, en tilkynning um málið barst lögreglu um hálftólfleytið og var hún með mikinn viðbúnað vegna málsins,“ segir í tilkynningunni. 

„Sökum ungs aldurs verður pilturinn vistaður með viðeigandi hætti á meðan gæsluvarðhaldið varir. Ungmennin, sem urðu fyrir árásinni, voru öll flutt á slysadeild, en eitt þeirra slasaðist mjög alvarlega og er í lífshættu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert