Álag á bráðamóttöku: Forgangsraða eftir bráðleika

Á bráðamóttökunni er forgangsraðað eftir bráðleika.
Á bráðamóttökunni er forgangsraðað eftir bráðleika. mbl.is/Árni Sæberg

Mikið álag er á deildum Landspítala sem bitnar helst á bráðamóttökunni í Fossvogi þar sem sjúklingum er nú forgangsraðað eftir bráðleika.

Í færslu Landspítalans á Facebook segir að fólk sem ekki sé í bráðri hættu gæti þurft að bíða lengur en annars eftir þjónustu.

Er fólk sem ekki er í bráðri hættu hvatt til að hringja fyrst í 1700 eða leita upplýsinga á netspjalli Heilsuveru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert