Ekki fleiri íshellaferðir í Vatnajökulsþjóðgarði

Breiðamerkurjökull er í suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðsins. Engar fleiri íshellaskoðanir verða á …
Breiðamerkurjökull er í suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðsins. Engar fleiri íshellaskoðanir verða á svæðinu að svo stöddu.

Vatnajökulsþjóðgarður hefur óskað eftir því við viðeigandi ferðaþjónustuaðila að ekki verði farið í íshellaferðir á svæði þjóðgarðsins að svo stöddu. Allir hafa orðið við þeirri beiðni. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá þjóðgarðinum.

Þá segir jafnframt að það sé til skoðunar að herða kröfur til rekstraraðila sem starfa í þjóðgarðinum og verður sú vinna unnin í nánu samstarfi við hagsmunaaðila. Í tilkynningunni segir að von sé á tillögum síðar í haust.

„Rekstraraðilar sem hafa leyfi til íshellaferða og jöklagangna innan þjóðgarðsins þurfa að vera með eigin öryggisáætlun og einnig að vera með leyfi sem ferðasali dagsferða frá Ferðamálastofu. Einnig þarf að uppfylla gildandi gæðaviðmið varðandi íshellaskoðun og gönguferðir í fjallendi við vetraraðstæður og á jöklum.“ 

Hafa takmarkaðar heimildir 

Í tilkynningunni segir að Vatnajökulsþjóðgarður hafi takmarkaðar heimildir til að loka fyrir umferð um svæðið og hefur þjóðgarðurinn og Ferðamálastofa þegar hafið samtal við hluteigandi aðila innan ferðaþjónustunnar og stjórnsýslunnar um mögulegar úrbætur og aðgerðir vegna slyssins sem varð í gær.

„Vatnajökulsþjóðgarður harmar að slysið hafi átt sér stað. Hugur starfsfólks Vatnajökulsþjóðgarðs er hjá þeim sem eiga um sárt að binda vegna slyssins. Þá vill þjóðgarðurinn þakka þeim fjölmörgu viðbragðsaðilum sem sinntu störfum við afar krefjandi aðstæður og öðrum sem lögðu aðgerðunum lið,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert