Útkall vegna veikinda við Hornbjarg

Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan 15 í dag vegna veikinda sem upp komu við Hornbjarg.

Þetta segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar við mbl.is

Þetta er annað sjúkraflug gæslunnar það sem af er degi en þyrlan var rétt komin úr sjúkraflugi frá Hvammstanga þegar óskað var eftir henni við Hornbjarg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert