Víða þurrt og bjart í dag

Hiti verður á bilinu 8 til 15 stig yfir daginn.
Hiti verður á bilinu 8 til 15 stig yfir daginn. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Breytileg átt verður í dag, 3 til 10 metrar á sekúndu og víða þurrt og bjart veður, en dálítil væta verður norðaustanlands fram undir hádegi.

Hiti verður á bilinu 8 til 15 stig yfir daginn, hlýjast um landið sunnanvert. Þykknar upp sunnan til í kvöld.

Austan og norðaustan 3-10 m/s verða á morgun og skýjað með köflum, en 8-13 við suðurströndina og lítilsháttar væta. Hlýnar heldur fyrir norðan. Fer að rigna austan til annað kvöld.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert