Vísir braut gegn siðareglum með myndbirtingu

Myndbirtingin tengdist lögregluaðgerðum á Bolungarvík í lok maí.
Myndbirtingin tengdist lögregluaðgerðum á Bolungarvík í lok maí. mbl.is/Eggert

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að fréttavefurinn Vísir hafi brotið gegn siðareglum félagsins með með birtingu myndar af húsi i Bolungarvík með frétt um lögregluaðgerð á staðnum, sem birt var á vef Vísis 27. maí.

Siðanefndin segir brotið ámælisvert.

Myndbirtingin ekki varðað almannahagsmuni

Myndbirtingin var kærð í júní til siðanefndarinnar en kærandi taldi að húsið hefði verið auðþekkjanlegt og myndbirtingin væri brot á friðhelgi einkalífs og ekki varðað almannahagsmuni. 

Fram kemur í úrskurði nefndarinnar, að kærandinn sé sonur manns sem fannst látinn á heimili sínu í Bolungarvík.

Tóku skjáskot af húsi á ja.is

„Hin kærða mynd er skjáskot af vefsíðunni ja.is af húsi í Bolungarvík, sem birt var á Vísi kl. 23:00. Í kærunni kemur fram að lögregla hafi komið kl. 22.53 á heimili kæranda og tilkynnt honum að faðir hans og eiginkona hafi fundist látin á heimili sínu í Bolungarvík. Lögreglumaðurinn hafi farið um kl. 23.15. Um kl. 23.30 hafi kærandi séð frétt á vefmiðlinum Vísi þar sem fram kom að lögreglan væri að rannsaka andlát í húsi við Hlíðarveg í Bolungarvík og mynd birt af húsinu. Kærandi kveður að við Hlíðarveg séu 7 hús og fljótgert sé að fletta því upp hverjir búa í húsinu. Kærandi segir að flestir aðstandendur hafi frétt af andlátinu í gegnum Vísi enda hafi þeir þekkt húsið um leið,“ segir í úrskurðinum. 

Upplýsingar hefðu verið settar fram á heiðarlegan hátt

Vísir krafðist þess í andsvörum að kærunni yrði hafnað. Bent var á að kærandi vísaði í alþjóðlegar reglur, sem ekki giltu hér, og eldri siðareglur sem fallnar væru úr gildi. Einnig sagði í andsvörum að þegar myndin hefði verið birt hefði umfangsmikil lögregluaðgerð verið í gangi í nærri fimm klukkustundir þar sem andlát væri til rannsóknar. Upplýsingar um málið hefðu verið settar fram á sanngjarnan og heiðarlegan hátt.

Vísir benti jafnframt á að megin skylda blaðamanna væri að standa vörð um tjáningarfrelsið, frjálsa fjölmiðlun og rétt almennings til upplýsinga, samanber 2. grein gildandi siðareglna. Í þeim væri hvergi vikið að friðhelgi einkalífs.

Myndin hafði ekkert sjálfstætt fréttagildi

Að mati siðanefndar BÍ hafði umrædd mynd, sem var skjáskot af ja.is, ekkert sjálfstætt fréttagildi.

„Að mati siðanefndar var það ósanngjarnt gagnvart kæranda og öðrum aðstandendum að birta myndina á þeim tíma sem það var gert, í ljósi alvarleika málsins. Myndin var tekin úr birtingu daginn eftir, en þess ekki getið í fréttinni að myndin hafi verið tekin út, né beðist velvirðingar á því. Að mati siðanefndar eru það ekki sanngjörn eða heiðarleg vinnubrögð. Á hinn bóginn verður ekki framhjá því litið að aðgerðir lögreglu á vettvangi voru fyrir allra augum á Bolungarvík og höfðu staðið yfir í nokkrar klukkustundir þegar fyrstu fréttir voru birtar. Fréttir af alvarlegum atburðum varða almannahagsmuni og eiga erindi til almennings en gæta verður sanngirni eins og kveðið er á um í 2. gr. siðareglna.“

„Kærðu, Vísir, Ólafur Björn Sverrisson og Jón Þór Stefánsson, teljast hafa brotið gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands með birtingu myndar þann 27. maí sl. Brotið er ámælisvert,“ segir í úrskurðarorðum siðanefndarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert