Allt að 15 stiga hiti í dag

Spákortið á hádegi í dag.
Spákortið á hádegi í dag. Kort/mbl.is

Í dag er spáð austan og norðaustan 3 til 8 metrum á sekúndu, en 8-13 m/s og dálítilli rigningu við suðurströndina.

Hægara og styttir víða upp eftir hádegi, en norðaustan 5-13 m/s verða og fer að rigna austantil í kvöld.

Á morgun verður norðan 3-10 m/s og víða dálítil rigning, en skýjað með köflum og þurrt að mestu vestantil.

Hiti verður á bilinu 7 til 15 stig að deginum, hlýjast suðvestantil.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert