Maður fannst látinn í fjörunni á Álftanesi

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ljósmynd/Aðsend

Vegfarandi fann látinn mann í fjörunni á Álftanesi rétt fyrir hádegi í dag. Lögreglan er með málið til rannsóknar. 

Ríkisútvarpið greinir frá. 

Ekki er ljóst hvernig maðurinn lést en ekki leikur grunur á um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti, að því er fram kemur í frétt Ríkisútvarpsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert