Öll kerfi Alþingis liggja niðri

Alþingishúsið í Reykjavík.
Alþingishúsið í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Öll kerfi Alþingis liggja niðri frá klukkan 16 til 24 í kvöld, þar með talið vefir og tölvupóstur. 

Frá þessu er greint á vef Alþingis, sem er að öðru leyti ekki virkur. Þar kemur jafnframt fram að kerfin liggi niðri vegna vinnu við flutning á miðlægum búnaði og mögulega verði truflanir á kerfunum á morgun. 

Alþingi biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Svona lítur vefur Alþingis út þessa stundina.
Svona lítur vefur Alþingis út þessa stundina. Vefur Alþingis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert