Stakk af áður en lögreglan kom

Tilkynnt var um líkamsárás og eld í gám til lögreglu.
Tilkynnt var um líkamsárás og eld í gám til lögreglu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um líkamsárás í hverfi 201 í Kópavogi en meintur gerandi hljóp frá vettvangi áður en lögreglu bar að.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Dag­bók­in nær til verk­efna lög­reglu frá klukk­an 5 í morgun til klukk­an 17 í dag.

Tilkynnt var um eld í gámi í hverfi 101 í Reykjavík, en þá var slökkvilið kallað út og slökkti það í eldinum. 

Umferðarslys varð í miðborg Reykjavíkur en grunur leikur á um að annar ökumannanna hafi ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Málið er í rannsókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert