Stúlkan enn í lífshættu: Rannsókn miðar vel

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í miðborginni á …
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í miðborginni á laugardagskvöld miðar vel. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í miðborginni á laugardagskvöld miðar vel. Hún er umfangsmikil og hefur verið í algjörum forgangi hjá embættinu frá því að málið kom upp.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þar segir að lögreglan hafi snemma haft nokkuð skýra sýn af atburðarásinni á vettvangi og fljótlega var sextán ára piltur handtekinn í tengslum við málið.

„Sá var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald, eins og fram hefur komið, en pilturinn er grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi. Hin slösuðu, tvær stúlkur og einn piltur, eru öll á svipuðu reki og árásarmaðurinn. Hann er íslenskur og báðar stúlkurnar sömuleiðis, en pilturinn sem varð fyrir árásinni er af erlendu bergi brotinn. Önnur stúlknanna slasaðist mjög alvarlega og er enn í lífshættu.“ 

Fjöldi fólks kallað til skýrslutöku

Fjölmenni var í miðborginni þegar árásin átti sér stað enda flugeldasýningu Menningarnætur nýlokið. Margir voru því í nálægð við vettvanginn þegar lögreglu og sjúkralið bar að og ber fjöldi þeirra sem hafa verið kallaðir til skýrslutöku vitni um það. Í rannsóknum lögreglu er reynt að varpa ljósi á alla þætti máls, m.a. um frekari aðdraganda atvika og hugsanleg tengsl málsaðila. Það er hefðbundið verklag og á við um þetta mál sem önnur, en ekki er tímabært að upplýsa nánar um málsatvik,“segir enn fremur í tilkynningunni.

Lögreglan segir að ekki sé hægt að greina frekar frá einstökum þáttum rannsóknarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert