2,6% atvinnuleysi í júlí

Atvinnuleysi dróst lítillega saman á milli mánaða.
Atvinnuleysi dróst lítillega saman á milli mánaða. mbl.is/Kristinn Magnússon

6.200 manns voru atvinnulausir í júlí síðastliðnum, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar.

Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 2,6%. Hlutfall starfandi var 80,7% og atvinnuþátttaka var 82,9%.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,3 prósentustig á milli mánaða og hlutfall starfandi jókst um 1,3 prósentustig. Atvinnuþátttaka jókst um 1,1 stig, að því er segir á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert