Alvarlegt slys: Lögreglan óskar eftir vitnum

Ökumaður rafmagnshlaupahjólsins var fluttur mikið slasaður á slysadeild.
Ökumaður rafmagnshlaupahjólsins var fluttur mikið slasaður á slysadeild. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Bústaðavegar og Suðurhlíðar í Reykjavík síðastliðinn laugardag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þar segir að tilkynning um slysið hafi borist klukkan 15.28, en þar varð árekstur bifreiðar og rafmagnshlaupahjóls.

„Í aðdragandanum var bifreiðinni ekið vestur Bústaðaveg, en við gatnamótin beygði ökumaður hennar til norðurs (akstursleið að Veðurstofu Íslands) þegar ökumaður rafhlaupahjóls ætlaði að þvera veginn á sama stað svo árekstur varð með þeim,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur í tilkynningunni að ökumaður rafmagnshlaupahjólsins hafi verið fluttur mikið slasaður á slysadeild.

Þau sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudni.p@lrh.is. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert