Hafnar ásökunum forstjóra MAST

Ester segir að ekkert saknæmt sé að finna í skrifum …
Ester segir að ekkert saknæmt sé að finna í skrifum hennar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forstjóri MAST og tveir starfsmenn stofnunarinnar hafa gefið út kæru vegna skoðanagreinar sem birtist á Vísi þann 16. júlí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST. 

Í tilkynningunni er hinn kærði ekki nafngreindur en ætla má að um sé að ræða Ester Hilmarsdóttur sem birti skoðanagrein sem ber fyrirsögnina „Af glyðrugangi eftirlitsstofnana“.

Ester skrifaði greinina í tilefni þess að MAST veitti Arnarlaxi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á þremur stöðum í Ísafjarðardjúpi.

Þar sakar hún starfsmenn MAST um að „skaka sér í skrifstofustólunum og skrjáfa svo seðlunum sem norskir auðkýfingar hafa stungið í vasa þeirra um leið og þeir skrifi upp á rekstarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi þrátt fyrir mótmæli Vegagerðarinnar og Landhelgisgæslunnar“.

Ester Hilmarsdóttir náttúruunnandi
Ester Hilmarsdóttir náttúruunnandi Ljósmynd/Aðsend

Segir ekkert saknæmt að finna

Ester hafnar því alfarið að eitthvað saknæmt sé að finna í skrifum hennar. 

„Ég hafna því alfarið að nokkuð saknæmt sé að finna í skrifum mínum um glyðrugang eftirlitsstofnanna sem forstjóri Matvælastofnunar (MAST) og tveir starfsmenn hennar hafa kosið að kæra mig fyrir til lögreglu.[...]. Eftirlitsstofnanir eru ekki yfir gagnrýni hafnar frekar en aðrir,“ skrifar Ester í yfirlýsingu sinni. 

Í tilkynningunni sem MAST sendi frá sér vegna málsins segir að stofnunin vinni faglega að umsóknum um rekstrarleyfi fiskeldis. 

„Forstjóri stofnunarinnar og starfsmenn sem komu að meðferð og útgáfu rekstrarleyfisins telja að með framkominni aðdróttun sé alvarlega vegið að heiðri og æru þeirra og verði ekki komist hjá öðru en að kæra skrifin til lögreglu,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert