Líðan stúlkunnar óbreytt

Stunguárásin var gerð á Skúlagötu á laugardagskvöldið.
Stunguárásin var gerð á Skúlagötu á laugardagskvöldið. mbl.is/Ólafur Árdal

Líðan stúlkunnar sem hlaut lífshættulega áverka í stunguárásinni við Skúlagötu í Reykjavík á laugardagskvöldið er óbreytt. Hún er enn í lífshættu.

Þetta segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar, við mbl.is.

Í varðhaldi á Hólmsheiði

Rannsókn lögreglunnar miðar vel en að sögn Gríms er hún afar umfangsmikil.

Sextán ára piltur var handtekinn í tengslum við málið en hann er grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi.

Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. ágúst og sætir einangrun í fangelsinu á Hólmsheiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert