Klukkan 11 í dag er fyrirhugað að prófa rýmingarflautur í Grindavík og í Svartsengi.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum á Facebook en þar segir að þetta sé liður í mánaðarlegri prófun á virkni rýmingarlúðra á þessum stöðum sem verður eftirleiðis síðasta miðvikudag í hverjum mánuði.