Víða rigning eða súld

Hiti verður á bilinu 6 til 14 stig að deginum.
Hiti verður á bilinu 6 til 14 stig að deginum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag er spáð norðan 3 til 10 metrum á sekúndu. Víða verður dálítil rigning eða súld, en skýjað með köflum og þurrt að mestu vestantil.

Á morgun verður vestlæg átt, 3-10 m/s og bjart verður með köflum, lítilsháttar væta við austurströndina, en suðvestan 5-13 m/s og dálítil rigning á Vestfjörðum um kvöldið.

Hiti verður á bilinu 6 til 14 stig að deginum, hlýjast sunnanlands.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert