Ætluðu að sofa fyrir utan verslun

Fólkinu var vísað á brott.
Fólkinu var vísað á brott. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um nokkra einstaklinga að undirbúa svefn utan við verslun í miðbæ Reykjavíkur og var þeim vísað á brott.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.

Þrír gistu fangageymslu lögreglunnar eftir nóttina þegar dagbókin var skrifuð í morgun.

Einnig var tilkynnt um minniháttar umferðaróhapp í Árbænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert