Eldur kviknaði í íbúð á Akranesi

Slökkvistarf gekk vel fyrir sig.
Slökkvistarf gekk vel fyrir sig. mbl.is

Eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi á Akranesi á ellefta tímanum í kvöld. 

Frá þessu greinir Skessuhorn.

Eldurinn kom upp í Asparskógum 16 og var hann aðeins staðbundinn við eina íbúð í byggingunni. Einn var í íbúðinni þegar eldurinn kviknaði en hann komst ómeiddur frá brunanum.

Fram kemur í umfjölluninni að slökkvistarf hafi gengið vel og unnið sé að því að reykræsta íbúðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert