Konan sem var bjargað upp úr Silfru er öll að braggast

Konan er öll að braggast.
Konan er öll að braggast. Ljósmynd/Dive.is

Konan sem bjargað var úr Silfru á Þingvöllum á mánudaginn eftir að hafa misst meðvitund í köfunarferð er á batavegi.

Konan var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann og eftir því sem best er vitað er hún þar enn en er öll að braggast.

Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir við mbl.is að rannsókn málsins standi enn yfir en konan, sem er á sjötugsaldri, var í köfunarferð á veg­um ferðaþjónustufyrirtækis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka