Svartserkur breiðist hratt út

Svartserkur er hefur nú fundist í Hrútafirði og Eyjafirði.
Svartserkur er hefur nú fundist í Hrútafirði og Eyjafirði. Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir

Sæsniglategundin svartserkur, sem fyrst varð vart við hér á landi við Sandgerði árið 2020, virðist breiðast mjög hratt út. Svanhildur Egilsdóttir, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, fann í vikunni svartserki í fjörum bæði í Hrútafirði og Eyjafirði.

Útbreiðsla svartserks hefur til þessa verið bundin við Kyrrahaf.

„Við vitum ekki alveg hvaða áhrif þessi dýrategund mun hafa, segir Sindri Egilsson, forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands, en stofnunin hefur með höndum vöktun á framandi tegundum hér við land. Svartserkur nærist á burstaormum og smáum krabbadýrum í seti og er þá í beinni samkeppni við ýmsar aðrar tegundir á sömu búsvæðum. Svo vitum við ekki heldur hvort einhverjar tegundir munu nýta sér hann sem fæðu; það er ein af þessum spurningum sem við erum að leita svara við nú.“ 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert