Alvarlegt vinnuslys í Garðabæ

Einn er slasaður vegna vinnuslyss í Garðabæ.
Einn er slasaður vegna vinnuslyss í Garðabæ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn slasaðist í vinnuslysi í Garðabæ nú síðdegis. 

Þetta staðfestir Þorsteinn Gunnarsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. 

Hann segir þrjá sjúkrabíla og einn dælubíll á vettvangi en kveðst ekki vita hvernig slysið bar að né hversu alvarlega slasaður einstaklingurinn sé. 

Uppfært 16:43: 

Slysið er talið alvarlegt og hefur einstaklingurinn verið fluttur á sjúkrahús. Lögreglumenn eru enn á vettvangi að sögn Skúla Jónssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns, en hann kvaðst ekki geta tjáð sig frekar um slysið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert