Atburðinum að ljúka

Skaftá. Myndin er úr safni.
Skaftá. Myndin er úr safni. mbl.is/Jónas Erlendsson

Síðustu tvo daga hefur rennsli í Skaftá farið lækkandi og mælist um 100 m3/s við Sveinstind. Vatnsmagn í ánni er því að verða svipað og það var áður en hlaup hófst þann 20. ágúst og atburðinum því að ljúka.  

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. 

„Í þessu hlaupi mældist rennsli í Skaftá við Sveinstind lengst af á milli 180 og 220 m3/s sem er mjög lágt rennsli fyrir hlaup úr Eystri Skaftárkatli. Það eru ekki nema 12 mánuðir frá seinasta hlaupi meðan að algengast er að það líði 2 til 3 ár á milli hlaupa frá Eystri-Skaftárkatli,“ segir í tilkynningunni. 

Þá kemur fram, að í síðasta hlaupi, haustið 2023, hafi mesta rennsli við Sveinstind mælst tæplega 750 m3/s og það sé þó mun minna en í stærstu hlaupum frá Eystri Skaftárkatli. Þau hlaup sem hafi komið þegar einungis eitt ár hafi liðið frá síðasta hlaupi hafi verið áþekk þessu hlaupi með lágu hámarksrennsli en vörðu lengur.  

„Þess ber að geta að óvenju langt er nú frá seinasta hlaupi úr Vestari-Skaftárkatlinum, sem hljóp síðast haustið 2021. Að meðaltali hafa verið um tvö ár á milli hlaupa þaðan,“ segir enn fremur. 

Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert