Beint: Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun ávarpa flokksmenn.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun ávarpa flokksmenn. mbl.is/Óttar

Flokksráð Sjálfstæðisflokksins kemur saman til fundar í dag kl. 13:00 á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hefst með ræðu Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra.

Þá mun Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður flokksins og utanríkisráðherra einnig ávarpa fundinn sem og Vilhjálmur Árnason ritari flokksins og ráðherrar flokksins; Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Guðrún Hafsteinsdóttir.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan. 

Dagskrá fundarins má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert