Stúlkan er látin

mbl.is/Sverrir

Stúlkan sem var stungin með hnífi í miðborginni á Menningarnótt er látin.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Hún lést af sárum sínum á Landspítalanum í gærkvöld. Hún hét Bryndís Klara Birgisdóttir og var 17 ára.

„Fjölskylda Bryndísar Klöru vill koma á framfæri þakklæti til allra sem reyndu eftir fremsta megni að bjarga lífi Bryndísar Klöru, sérstaklega starfsfólki Landspítalans og þeim sem komu að fyrstu hjálp á vettvangi. Hjálp þeirra er ómetanleg,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert