Slökkviliðið á Akureyri var kallað út í dag eftir að eldur kviknaði í skúr á baklóð í Hafnarstræti.
Fréttaritari Morgunblaðsins, Þorgeir Baldursson, er á vettvangi og segir þrjá slökkviliðsmenn á tveimur slökkviliðsbílum vinna að því að slökkva eldinn.
Engir íbúar voru inni í skúrnum þegar eldurinn kviknaði en hann er allur sviðinn að innan.
Upptök eldsins liggja ekki fyrir að svo stöddu.