Enn rafmagnslaust í Vesturbæ Hafnarfjarðar

Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

Enn er rafmagnslaust í Vesturbæ Hafnarfjarðar. Verið er að grafa niður að biluninni. 

Þetta kemur fram í Facebook-færslu HS Veitna.

Rétt fyrir klukkan níu í morgun varð rafmagnslaust í hluta Hafnarfjarðar og á Álftanesi vegna bilunnar. Rafmagn komst á um hálftíma síðar alls staðar nema í Vesturbæ Hafnarfjarðar. 

Í færslunni segir að verið sé að grafa niður að biluninni og í kjölfarið verður unnið að viðgerð á strengnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka