Hausti fylgir að nú er sauðfé rekið úr sumarhögum og voru fyrstu réttir í gær; Baldursheims- og Hlíðarréttir í Mývatnssveit.
Venjan í sveitum landsins er annars og almennt sú að virkir dagar vikunnar í fyrri hluta september eru teknir í göngur og fjallferðir og svo er réttirnar um helgi.
Réttað er í Hrútatungu- og Miðfjarðarréttum í Húnaþingi vestra næsta laugardag, 7. september, og daginn eftir verður fé dregið í dilka í Stafnrétt í Svartárdal í Austur-Húnavatnssýslu. Undirfellsrétt í Vatnsdal er tveggja daga verkefni, réttað er næsta föstudag, 6. september, og svo er tekin önnur rispa næsta dag.
Hraunsrétt í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu er 15. september.
Lesa má meira um réttir í Morgunblaðinu í dag.