Andri nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins

Andri hefur undanfarin sex ár verið einn af aðstoðarframkvæmdastjórum EFTA, …
Andri hefur undanfarin sex ár verið einn af aðstoðarframkvæmdastjórum EFTA, Fríverslunarsamtaka Evrópu. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Andri Lúthersson er nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins. Tekur hann við starfinu af Sesselju Sigurðardóttur sem hefur tekið við embætti skrifstofustjóra á laga- og stjórnsýsluskrifstofu utanríkisráðuneytisins.

Hlutverkið felst í því að veita forsætisráðherra ráðgjöf í utanríkismálum, hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti ráðherrans og ráðuneytisins.

Andri hefur undanfarin sex ár verið einn af aðstoðarframkvæmdastjórum EFTA, Fríverslunarsamtaka Evrópu. Þar áður stýrði hann m.a. upplýsingadeild utanríkisráðuneytisins, samræmdi stefnu stjórnvalda vegna útgöngu Breta úr ESB og EES, starfaði hjá sendiráði Íslands í Brussel, var ritari þingmannanefndar EFTA/EES hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel og var um árabil alþjóðaritari á skrifstofu Alþingis. Andri er með meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá Háskólanum í Kent og BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningu Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert