Kjörís innkallar Hnetu-Toppís

Rangar merkingar eru á vörunni þar sem innihaldsefni hafa slæðst …
Rangar merkingar eru á vörunni þar sem innihaldsefni hafa slæðst með í lýsingu.

Kjörís hefur innkallað Hnetu-Toppís í 5 stk. umbúðum sem fyrirtækið hefur nýlega sett á markað og hefur nú þegar verið dreift í stórmarkaði og matvöruverslanir um allt land.  

Ástæða innköllunarinnar eru rangar innihaldsmerkingar en viðbótar innihaldsefni hafa slæðst með í innihaldslýsingum á ytri umbúðum. Þar kemur fram að varan innihaldi smjör, þrúgusykur og karamellu sem er rangt og þessum innihaldsefnum því ofaukið í innihaldslýsingu.

Varan er með best fyrir dagsetningunni : BF 21.02.26, BF 22.02.26, BF 23.02.26, BF 27.02.26, BF 28.02.26, BF 29.02.26, BF 30.02.26 og strikamerkingunni 5690581572505.

Tengist ekki viðvörun Emmessís um lögbann

Verslanir hafa verið beðnar um að taka vöruna úr sölu og eru sölumenn Kjörís að sækja þessar pakkningar á sölustaði.

Unnið er að endurbótum á umbúðum. Kjörís tekur fram að fyllilega er óhætt að neyta vörunnar. 

Jafnframt tekur fyrirtækið fram að breytingar á umbúðum og innköllun vörunnar tengjast ekki athugasemdum sem Emmessís hefur gert við umbúðir vörunnar og viðvörun þess félags um að það kunni að krefjast lögbanns við dreifingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert