Beint: Niðurstöður sjálfbærniássins kynntar

Sjálfbærniásinn er nýr mælikvarði til að meta viðhorf almennings til …
Sjálfbærniásinn er nýr mælikvarði til að meta viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja og stofnana í sjálfbærni. Ljósmynd/Colourbox

Sjálfbærniásinn er nýr mælikvarði til að meta viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja og stofnana í sjálfbærni.

Niðurstöður sjálfbærniássins 2024 verða kynntar í dag kl. 9.15 í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík og fyrirtækjum sem skara fram úr veitt viðurkenning.

Hægt er að fylgjast með kynningunni í beinu streymi hér fyrir neðan. 

Fram kemur í tilkynningu, að þessi mæling sé svar við aukinni kröfu frá viðskiptavinum og öðrum hagaðilum á fyrirtæki að leggja áherslu á sjálfbærni.

Að verkefninu standa Prósent, Langbrók og Stjórnvísi.

Markmið sjálfbærniássins

  • Veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum.
  • Hvetja íslensk fyrirtæki til að leggja enn meiri áherslu á sjálfbærni.
  • Hjálpa fyrirtækjum að skilja mikilvægi þess að upplýsa almenning um stefnu sína og verkefni sem snúa að sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð.
  • Auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með kauphegðun sinni.
  • Vera íslenskum fyrirtækjum hvatning til að leggja enn frekari áherslu á þessi mál.

Framkvæmd og þátttakendur

Rannsóknin er framkvæmd af rannsóknarfyrirtækinu Prósenti. Framkvæmdatími var frá janúar til ágúst 2024 og var um að ræða netkannanir sem voru sendar á handahófskennt úrtak úr könnunarhópi Prósents sem inniheldur 15.000 Íslendinga, 18 ára og eldri.

Könnunin

Könnunin samanstendur af sex spurningum sem kanna viðhorf neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Spurningarnar snúa meðal annars að því hvort að fyrirtæki leggi sitt af mörkum til samfélagsins, hvort þau hugi að velferð viðskiptavina og hvort að þau leitist við að lágmarka sóun.

Markaðir og niðurstöður

Í ár voru 47 fyrirtæki mæld sem starfa á 14 mismunandi mörkuðum. Á meðal þeirra markaða sem voru mældir eru fjarskipti, bankar, tryggingar, orkufyrirtæki og matvöruverslanir.

Verðlaunaafhending

Viðurkenningar verða veittar á hverjum markaði fyrir sig auk þess sem fyrirtæki sem mælast með afbragðsgóða einkunn fá sérstaka viðurkenningu. Fyrirtæki sem fá viðurkenningu munu fá tækifæri til að nota merki sjálfbærniássins í markaðsstarfi sínu sem undirstrikar frammistöðu þeirra í sjálfbærni að mati almennings. Vinningshöfum verður þannig veittur heiður sem getur styrkt orðspor og ímynd fyrirtækisins, að því er fram kemur í tilkynningu. 

--

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert