Bryndís var hetja og augasteinn foreldra sinna

„Engin orð fá lýst þeirri sorg sem fjölskylda og ástvinir elsku Bryndísar Klöru, sem stungin var til bana á Menningarnótt, eru að upplifa þessa dagana og hversu langur og dimmur dalur er fram undan í lífi svo margra. Öryggiskennd okkar allra hefur skaðast.“

Þetta kemur fram í færslu sem birt er á Facebook-síðu Lindakirkju þar sem fjallað er um andlát Bryndísar Klöru Birgisdóttur. Tekið er fram að færslan hafi verið skrifuð í samráði og með leyfi fjölskyldu og vinkvenna Bryndísar Klöru.

Þar segir að Bryndís, sem fermdist í Lindakirkju vorið 2021, hafi haft hlýja nærveru, björt og falleg augu og hafi verið einstök stóra systir og fyrirmynd fyrir Vigdísi níu ára systur sína.

Hún hafi verið augasteinn foreldra sinna, ömmu og afabarn af bestu gerð, góð vinkona, sönn og heil.

Eru harmi slegin

„Við í Lindakirkju, eins og þjóðin öll, erum harmi sleginn. Við vildum að það væru til töfraorð sem hugga og geta breytt stöðunni en þau eru enginn til, þetta er óbærilegt og verður það áfram. Kirkjan á heldur ekki að þykjast vera töframaður, fremur að vera eins og ljósmóðir. Ljósmóðir sem stendur traustum fótum og heldur í höndina þegar hríðar og þjáning gengur yfir og segir uppörvandi: Þú getur þetta, ég er hér með þér, og þú munt komast í gegnum þetta. Við erum ekki ein á ferð, Guð grætur með okkur, huggar og styrkir,“ segir í færslunni.

„Við ætlum að gera allt sem við getum til að halda utan um þau sem syrgja svo sárt. Prestar Lindakirkju hafa sett í forgang að aðstoða foreldra og fjölskyldu, vinkonur og skólafélaga undanfarna viku, vegna stærðar verkefnisins hafa prestar og djáknar úr öðrum sóknum verið kölluð til og verkefnum útdeilt.“ 

Þá kemur fram, að minningarstund hafi verið haldin í Lindakirkju á sunnudaginn í samvinnu við Versló og Salaskóla.

Kvaddi allt of snemma

Í færslunni kemur einnig fram, að mikilvægustu skilaboðin hafi komið frá foreldrum Bryndísar sem og æskuvinkonum Bryndísar Klöru úr Salaskóla, en þær mættu í bleiku, uppáhaldslitnum hennar Bryndísar, og lásu þessi orð sem þær skrifuðu:

„Við viljum byrja á því að þakka ykkur öllum fyrir að koma til að sýna stuðning og minnast Bryndísar. Fyrir þá sem þekkja okkur ekki þá erum við æskuvinkonur Bryndísar. Flestir þekktu Bryndísi sem frekar feimna og kyrrláta stelpu. Hún kaus að vera ekki miðpunktur athyglinnar og leið alltaf best með sínum nánustu. Við sem vorum bestu vinkonur hennar þekktum hana sem algjöra andstæðu.

Þegar við hugsum um Bryndísi er það fyrsta sem okkur dettur í hug hvað hún var hress, skemmtileg, brosmild og góð manneskja en aðallega hvað hún var ótrúlega fyndin. Bryndís fékk rugluðustu hugmyndir í heimi, eitthvað sem engum öðrum myndi detta í hug eins og t.d. þegar hún mætti í afmæli búin að maka hveiti og matarlit framan í sig, þegar henni tókst að festa páfagaukinn sinn í ljósakrónu og þegar hún skrapaði af sér hálft andlitið í aparólunni í Salaskóla af því henni fannst það svo rosalega sniðugt að fara í hana á hvolfi.

Bryndís var mjög ástríðufull, þegar hún fann sér eitthvað sem hún elskaði þá ELSKAÐI hún það. Hvort sem það voru fjölskylda hennar og vinir eða eitthvað annað. Hún setti alltaf alla aðra í fyrsta sæti og var alltaf til staðar fyrir okkur. Hún var ótrúlega traust og góð vinkona og hún lífgaði alltaf upp á daginn með fallega brosinu sínu og sætu spékoppunum sínum. Við munum aldrei gleyma öllum stundunum sem við hlógum og skemmtum okkur oft langt fram á nótt.

Elsku Bryndís okkar sem kvaddi þennan heim alltof snemma, það er svo mikið sem hún mun ekki fá að upplifa. Það er svo óraunverulegt að standa hér vitandi að það sé ekki hægt að tala við hana á morgun og segja henni frá öllu sem er að gerast í lífinu.

Þó missir okkar allra sé mikill er missir Iðunnar og Birgis mestur og eitthvað sem ekkert foreldri ætti að þurfa að ganga í gegnum. Við hugsum líka til Vigdísar litlu sem hefur misst bestu stóru systur í heimi. Ekkert okkar skilur sorgina þeirra allra og hugur okkar er stöðugt hjá þeim.

Þetta hræðilega atvik sem átti sér stað hefur haft áhrif á alla. Bryndís er hetja og mun bjarga mörgum mannslífum í framtíðinni. Við þurfum öll að passa upp á að dauði Bryndísar verði til þess að það verði gert átak í málefnum barna og unglinga til þess að eitthvað þessu líkt gerist aldrei aftur. Verum góð hvert við annað og hjálpumst að að gera heiminn að stað sem leyfir þessu ekki að gerast.

Þessi tími sem við höfðum elsku Bryndísi hjá okkur var ómetanlega dýrmætur og við munum aldrei gleyma henni. Við erum að eilífu þakklátar fyrir að hafa átt Bryndísi sem vinkonu og okkur þykir endalaust vænt um allar minningarnar sem við eigum saman. Það hefur ekki sekúnta liðið þar sem við hugsum ekki til þín en þótt þú sért farin munum við aldrei gleyma þér og þú munt alltaf lifa í hjarta okkar. Orð geta ekki lýst hversu mikið þín verður saknað. Guð mun taka vel á móti þér uppi í himnaríki. Hvíldu í friði elsku Bryndís.“

Þá kemur fram, að foreldrar Bryndísar Klöru, Birgir og Iðunn, hefðu ekki treyst sér á stundina en sendu eftirfarandi skilaboð sem voru lokaorð stundarinnar:

„Okkur Iðunni þykir svo vænt um ykkur öll sem komið hér saman í dag, hlýhuginn og ástina til Bryndísar Klöru. Þið munuð verða ómetanleg sem riddarar, í minningu Bryndísar okkar, til að bæta heiminn og gera kærleikann að eina vopninu.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert