FÍB biðst afsökunar á ósanngjörnum samanburði

Segja má að FÍB hafi verið úti að aka.
Segja má að FÍB hafi verið úti að aka. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forsvarsmenn FÍB hafa beðist afsökunar á því að hafa birt stutta umfjöllun á vef félagsins í gær þar sem fjallað var um muninn á afkastagetu strætó og fólksbíla í umferðinni.

Þetta hafi verið ósanngjarn samanburður og rangt að birta hann.

FÍB tekur fram í tilkynningu, að líkt og einkabíllinn séu almenningssamgöngur valkostur til að komast á leiðarenda. FÍB hafi ætíð lagt áherslu á mikilvægi góðra og fjölbreyttra almenningssamgangna.

Tölfræðin var ósanngjörn

„Sú tölfræði sem FÍB birti í gær um samanburð á afköstum strætó og fólksbíla var ósanngjörn. Það er stundum hægt að fá reikningslega rétta útkomu með því að hafa til hliðsjónar aðstæður sem eru ekki sanngjarnar,“ segir í tilkynningunni.

„Enginn ferðamáti er merkilegri en annar, hvað sem tölfræði líður. Það er þvert á stefnu stjórnar FÍB að etja valkostum í samgöngum saman og þessi samanburður og framsetning var ekki anda þess sem FÍB stendur fyrir.

FÍB biðst velvirðingar á þeirri röngu ákvörðun að birta umræddan samanburð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert