Gleymdi sér við eldamennsku

Reykræsta þurfti íbúð í fjölbýlishúsi í Ljósheimum.
Reykræsta þurfti íbúð í fjölbýlishúsi í Ljósheimum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reykræsta þurfti íbúð í fjölbýlishúsi í Ljósheimum í Reykjavík á áttunda tímanum í morgun.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hafði íbúi þar gleymt sér við eldamennsku, en það var nágranni sem lét vita af reyknum.

Slökkviliðið sinnti einnig olíuhreinsun við hringtorg hjá Rauðavatni laust fyrir klukkan 10 í morgun. Ekki er vitað hvaðan olían kom.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert