Loftmengun gæti mælst á suðvesturhluta landsins

Búist er við að loftmengun geti mælst næstu daga á …
Búist er við að loftmengun geti mælst næstu daga á suðvesturhluta landsins vegna eldgossins á Reykjanesskaga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Búist er við að loftmengun geti mælst næstu daga á suðvesturhluta landsins vegna eldgossins á Reykjanesskaga.

Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar segir að mengunin muni berast til norðurs og norðvesturs í dag yfir Voga, Suðurnesja- og Reykjanesbæ en snúast til norðausturs á morgun og gæti þá mengunar orðið vart á höfuðborgarsvæðinu.

Hægt er að fylgjast með rauntímamælingum ýmissa gastegunda á vefnum loftgæði.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert