Lögreglan kölluð til vegna óvenjulegra aðstæðna

Snemma í gærmorgun handtók lögreglan á Vestfjörðum mann í almenningsgarði á Ísafirði. Lögreglan segir að svo virðist sem að maðurinn hafi legið sofandi á bekk í garðinum um nóttina.

„Þegar skólatími hófst í grunnskólanum hafði maðurinn vaknað og urðu nemendur hræddir við þennan einstakling. Maðurinn var með vasahníf á sér en skv. vitnum mun hann ekki hafa beinlínis ógnað nærstöddum með hnífnum en virtist þó vera í andlegu ójafnvægi,“ greinir lögreglan frá í færslu á Facebook. 

Þá kemur fram, að lögreglan hafi kallað til lækni til að skoða og meta ástand mannsins og í kjölfarið var hann fluttur á viðeigandi heilbrigðisstofnun í Reykjavík.

„Starfsfólk grunnskólans brást hárrétt við með því að kalla eftir aðstoð lögreglu og hringja í Neyðarlínuna, 112. Enda um óvenjulegar aðstæður að ræða, maður í andlegu ójafnvægi.
Alltaf gott að vera vel vakandi fyrir óvenjulegum aðstæðum og gæta varúðar,“ segir í færslu lögreglunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert