„Skynsamleg ákvörðun“

Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Sigurður Bogi

Tónlistarhátíðinni Stíflunni, sem fara átti fram í Árbæ á laugardaginn, hefur verið frestað eins og greint var frá í gærkvöldi.

Ásgeir Þór Ásgeirs­son, aðstoðarlög­reglu­stjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að hátíðinni hafi ekki verið frestað vegna tilmæla lögreglu.

„Eftir samtal lögreglu og skipuleggjenda hátíðarinnar voru málin rædd innan stjórnar fyrir þessum viðburði og í kjölfarið tók stjórnin ákvörðun um að fresta hátíðinni,“ segir Ásgeir Þór.

Borið á mikilli ölvun

Hann segir ákvörðunina skynsamlega í ljósi erfiðra mála en tvær síðustu helgar hefur borið á mikilli ölvun ungmenna í kringum hátíðir.

Þá hefur aukinn vopnaburður ungmenna verið mikið í umæðunni í kjölfar stunguárásar á Menningarnótt þar sem 17 ára stúlka lét lífið af sárum sem hún hlaut eftir árás 16 ára pilts. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert