Umdeild tillaga felld á aðalfundi

Sigríður Dögg, til vinstri, á fundinum í gærkvöldi.
Sigríður Dögg, til vinstri, á fundinum í gærkvöldi. Ljósmynd/Árni Sæberg

Umdeild lagabreytingartillaga stjórnar Blaðamannafélags Íslands um að afnema atkvæðisrétt lífeyrisþega í félaginu var felld á framhaldsaðalfundi í gærkvöldi.

Fram kemur í tilkynningu frá Blaðamannafélaginu að félagsmenn hafi skipst á skoðunum og að líflegar umræður hafi skapast en að tillagan hafi á endanum verið felld.  39% þeirra sem greiddu atkvæði vildu fella tillöguna en 59% vildu samþykkja hana, en aukinn meirihluta þarf til að breyta lögum félagsins.

Tillaga um vantraust ekki á dagskrá

Dagskrártillaga var einnig lögð fram í upphafi fundar um að fundurinn ályktaði um vantraust á formann félagsins, Sigríði Dögg Auðunsdóttur, en meirihluti fundarmanna greiddi atkvæði gegn því að taka tillöguna á dagskrá.

Lagabreytingatillaga stjórnar Blaðamannafélagsins um að afnema lagagrein um birtingu félagatals á opinberum vettvangi var einnig felld.

Hátt í 200 á fundinum

Hátt í 200 félagsmenn sóttu framhaldsfundinn í húsakynnum félagsins í Síðumúla. Fyrir fundinum lá að samþykkja ársreikninga félagsins, afgreiða 21 lagabreytingartillögu og fjórar reglugerðir sjóða auk kynningar á verkefna- og fjárhagsáætlun. Ársreikningar félagsins og allar reglugerðarbreytingar voru samþykktar, ásamt 19 lagabreytingum.

„Snúa bökum saman“

„Stjórn félagsins hefur að undanförnu verið í gagngerri endurskoðun á allri umgjörð, regluverki og rekstri félagsins með það að markmiði að efla starfið og gera það faglegra. Það er ánægjulegt að flestar lagabreytingar og reglugerðir hafi náð fram að ganga og ársreikningur félagsins hafi loks verið samþykktur. Blaðamenn sitja ekki á skoðunum sínum og það var gott að eiga hreinskiptið samtal um málefni félagsins. Þetta hlýtur að teljast fjölmennasti félagsfundur í sögu félagsins, að minnsta kosti eftir því ég best veit, og það er ánægjulegt að finna að félagsmönnum er annt um félagið sitt. Verkefnið fram undan er að snúa bökum saman og vinna að því að efla félagið, faglega blaðamennsku og fjölmiðlafrelsi í landinu, því blaðamennska hefur aldrei verið mikilvægari,” segir Sigríður Dögg í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert