Vísbendingar um að landris sé hafið á ný í Svartsengi

Mælingar á gosóróa og gasútstreymi frá eldgosinu benda til þess …
Mælingar á gosóróa og gasútstreymi frá eldgosinu benda til þess að dregið hafi nokkuð úr gosinu síðustu daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Veðurstofa Íslands segir að vísbendingar séu um að landris sé hafið á ný í Svartsengi.

Fram kemur í tilkynningu, að virknin í eldgosinu hafi haldið áfram að minnka síðustu daga. Enn virðast þó tvö gosop vera virk áfram.

Hraunbreiðan stækkar áfram til norðurs

Tekið er fram að hraunbreiðan norðan við gosopin haldi áfram að stækka á hægum hraða til norðurs og þykkni einnig á sama tíma.

„Að svo stöddu ógnar hraunflæði ekki innviðum í nágrenni gosstöðvanna. Mælingar á gosóróa og gasútstreymi frá eldgosinu benda einnig til þess að dregið hafi nokkuð úr gosinu síðustu daga,“ segir í tilkynningunni. 

Orkuverið í Svartsengi.
Orkuverið í Svartsengi. mbl.is/Eyþór

GPS-mælingar benda til landriss

Þá segir að GPS-mælingar sýni vísbendingar um að landris sé hafið á ný í Svartsengi. Á sama tíma hafi dregið úr flæði frá eldgosinu á Sundhnúkagígaröðinni.

„Það bendir til þess að innflæði í kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi sé meira en flæði úr eldgosinu á yfirborðinu. Þróunin er svipuð og eftir að síðasta gos hófst þann 29. maí. Þá byrjaði landris í Svartsengi að verða greinanlegt um tveimur vikum eftir að gosið hófst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert