Andlát hjóna í Neskaupstað: Áfram í gæsluvarðhaldi

Frá Neskaupstað.
Frá Neskaupstað.

Gæsluvarðhald yfir manninum sem er grunaður er um að hafa orðið hjónum í Neskaupstað að bana í lok ágúst hefur verið framlengt til 4. október.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Austurlandi en þar segir að rannsókn málsins sé í fullum gangi og miðar vel. Þar segir einnig að mikil vinna sé fram undan í úrvinnslu gagna sem muni taka tíma.

Maðurinn er grunaður um að hafa orðið hjón­un­um, sem voru á áttræðisaldri, að bana í Neskaupstað, en hann var síðan hand­tek­inn í Reykja­vík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert