Farþegum fjölgaði um 10% í ágúst

Þotur Icelandair.
Þotur Icelandair. mbl.is/Árni Sæberg

Icelandair flutti 601 þúsund farþega í ágúst, 10% fleiri en í ágúst í fyrra. Þar af voru 33% á leið til Íslands, 13% frá landinu, 50% ferðuðust um Ísland og 4% innan landsins.

Sætanýting var 86,9% og jókst hún um þrjú prósentustig á milli ára. Stundvísi var 82,8%, samanborið við 78,9% í ágúst í fyrra. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt 3,2 milljónir farþega, 8% fleiri en í fyrra.

„Farþegum í ágúst fjölgaði um 10% frá sama mánuði í fyrra og er hann einn umsvifamesti mánuður okkar frá upphafi hvað farþegafjölda varðar. Við höldum áfram að finna fyrir minni eftirspurn á markaðnum til Íslands samanborið við síðasta ár en eins og sjá má á aukinni sætanýtingu höfum við bætt upp fyrir hana með því að leggja aukna áherslu á tengifarþega. Þess má geta að hluti þessara farþega eru ferðamenn til Íslands þar sem 18 þúsund tengifarþegar nýttu sér Stopover vöruna okkar í ágúst, fimm þúsund fleiri en í fyrra. Þessir farþegar höfðu því viðdvöl á Íslandi í einn til sjö daga á leið sinni yfir Atlantshafið og sköpuðu þannig mikilvæg viðskiptatækifæri fyrir íslenska ferðaþjónustu,“ segir Bogi Nilsson, forstjóri Icelandair, í tilkynningu.

„Það er ánægjulegt að sjá áframhaldandi góða stundvísi og þann frábæra árangur sem við höfum náð með sameiginlegu átaki alls starfsfólks. Við leggjum áherslu á að halda áfram að efla þjónustuna við viðskiptavini okkar og við hlökkum til að bæta Lissabon við okkar öfluga leiðakerfi í október. Þessi nýi áfangastaður fellur vel að áformum okkar um samstarf við portúgalska flugfélagið TAP, sem mun opna spennandi tengingar í gegnum Lissabon,“ bætir hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert