Minnast Bryndísar Klöru á morgun

Bryndís Klara Birgisdóttir lést af áverkum sínum á Landspítalanum föstudaginn …
Bryndís Klara Birgisdóttir lést af áverkum sínum á Landspítalanum föstudaginn 30. ágúst. Ljósmynd/Aðsend

Lindakirkja í Kópavogi mun halda minningarstund á morgun þar sem Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem lést af sárum sínum eftir stunguárás í Reykjavík á Menningarnótt, verður minnst. 

Fram kemur í tilkynningu frá kirkjunni, að í „ljósi djúprar sorgar og ákalls samfélagsins um að heiðra minningu Bryndísar mun Lindakirkja opna dyr sínar fyrir almenning á morgun laugardaginn 7. september frá kl. 12 til 17“.

Þá eru liðnar tvær vikur frá voðaverkinu.

„Á stundinni verður varpað upp myndum sem vinir og fjölskylda hafa tekið saman ásamt og minningum um Bryndísi og eftirlætistónlist hennar, valin af vinkonum hennar, mun hljóma. Ekkert talað mál fer fram heldur geta allir sem vilja, komið og tendrað á kerti í minningu Bryndísar, beðið og átt hljóða stund í kirkjunni.“

Opið verður í Lindakirkju á morgun.
Opið verður í Lindakirkju á morgun. Ljósmynd/Aðsend

Minningarsjóður stofnaður

Þá segir að búið sé að stofna Minningarsjóð Bryndísar Klöru.

„Sjóðurinn er í umsjón KPMG og forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, er verndari sjóðsins. Sjóðurinn mun styðja við verkefni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi og efla samfélag þar sem samkennd og samvinna eru í forgrunni. Sjóðurinn mun einbeita sér að fræðslu, rannsóknum og vitundarvakningu til að koma í veg fyrir að slíkar hörmungar endurtaki sig. Framlög má leggja inn á reikning 0515-14-171717, kennitala 430924-0600,“ segir í tilkynningunni. 

„Heiðrum minningu Bryndísar með því að velja líf en ekki hníf. Við biðlum til allra sem bera hnífa að skila þeim til lögreglunnar. Foreldrar Bryndísar óska þess að dauði hennar verði til þess að vopnaburður heyri sögunni til og kærleikurinn verði eina vopnið. Stöndum saman fyrir öruggara og betra samfélagi.“

Stofnaður hefur verið Minningarsjóður Bryndísar Klöru og er forseti Íslands …
Stofnaður hefur verið Minningarsjóður Bryndísar Klöru og er forseti Íslands verndari sjóðsins. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert