Rannsókn á manndrápi á lokastigi

Í undirbúningi er að koma málinu til héraðssaksóknara.
Í undirbúningi er að koma málinu til héraðssaksóknara. Mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson

Rannsókn á manndrápi í sumarhúsi í Kiðjabergi í uppsveitum Árnessýslu þann 20. apríl í vor er á lokastigum að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi.

Hann segir að í undirbúningi sé að koma málinu til héraðssaksóknara. Litháískur karlmaður er grunaður um manndráp í sumarhúsinu en samlandi hans var úrskurðaður látinn skömmu eftir komu viðbragðsaðila á vettvang.

Upphaflega voru fjórir menn handteknir þann 20. apríl en tveimur var síðar sleppt. Hinir voru voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald en öðrum þeirra var síðar sleppt en sá grunaði í málinu var í afplánun út af öðru máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert