Spursmál: TikTok eitraðra en filterslausar Camel-sígarettur

Björn Leví Gunnarsson, Teitur Björn Einarsson, Grímur Atlason og Tryggvi …
Björn Leví Gunnarsson, Teitur Björn Einarsson, Grímur Atlason og Tryggvi Hjaltason eru gestir í Spursmálum. María Matthíasdóttir

Grím­ur Atla­son, fram­kvæmda­stjóri Geðhjálp­ar, og Tryggvi Hjalta­son, formaður hug­verkaráðs og höf­und­ur ný­legr­ar skýrslu um stöðu drengja í ís­lensku mennta­kerfi, sátu fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála sem sýndur var í streymi hér á mbl.is fyrr í dag.

Upptöku af þættinum má sjá í spilaranum hér að neðan, á Spotify og YouTube og er hún öllum aðgengileg.

Aukinn vopnaburður og vanlíðan barna

Í kjöl­far hnífa­árás­ar­inn­ar í miðborg Reykja­vík­ur á Menn­ing­arnótt þar sem ung stúlka týndi lífi sínu og fleiri ung­menni særðust hafa marg­ar spurn­ing­ar vaknað um hvers kon­ar sam­fé­lags­breyt­ing­ar eru að eiga sér stað hér á landi.

Í þættinum ræddu þeir Grím­ur og Tryggvi tæpitungu­laust um af­leiðing­ar stór­auk­ins vopna­b­urðar, óör­yggi og van­líðan barna og með hvaða hætti hægt sé að sporna við þess­ari vá­legu þróun. Enda um risa­vaxið mál að ræða sem snert­ir allt sam­fé­lagið í heild.

Sjálf­stæðis­flokk­ur í kreppu

Pírat­inn Björn Leví Gunn­ars­son fór yfir helstu tíðindi í líðandi viku ásamt Teiti Birni Ein­ars­syni, þing­manni Sjálf­stæðis­flokks­ins, og á nógu var að taka.

Storma­sam­ur kosn­inga­vet­ur virðist vera í vænd­um. Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn á nú und­ir högg að sækja eft­ir að í ljós kom að fylgi flokks­ins mæl­ist í sögu­legu lág­marki.

Fóru þeir Björn Leví og Teit­ur Björn yfir þessi mál og fleiri og skapaðist sérlega lífleg umræða þeirra á milli.

Ekki missa af Spurs­mál­um hér á mbl.is alla föstu­daga klukk­an 14. Einnig eru þætt­ir Spurs­mála aðgengi­leg­ir á Spotify og YouTu­be.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert