Landeigendur fá lengri frest

Bjarnarey er meðal þeirra eyja sem ríkið gerði kröfu til.
Bjarnarey er meðal þeirra eyja sem ríkið gerði kröfu til. mbl.is/Árni Sæberg

Ekki mun skýrast fyrr en í fyrsta lagi í lok árs hversu umfangsmikill ágreiningur kann að koma upp milli ríkisins og landeigenda á svæði 12 (eyjar og sker) vegna eignarréttar.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Óbyggðanefnd tilkynnti að kröfulýsingarfrestur landeigenda hefði verið framlengdur til 2. desember þar sem endurskoðaðar kröfur ríkisins hafa ekki verið lagðar fram.

„Í apríl barst nefndinni bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem því var lýst að ráðherra hefði ákveðið að taka kröfugerð ríksins á svæði 12 til ítarlegrar endurskoðunar.

Sú endurskoðun stendur enn þá yfir en mun vera á lokametrunum og við eigum von á því að endurskoðaðar kröfur ríksins berist mjög fljótlega,“ segir Sigmar Aron Ómarsson framkvæmdastjóri óbyggðanefndar.

Stena á að ljúka málunum á næsta ári

„Í vor var ákveðið að landeigendur hefðu frest til 2. september en þar sem endurskoðaðar kröfur ríkisins liggja ekki fyrir var ákveðið að landeigendur fái frest til 2. desember.

Þegar kröfur ríkisins koma fram þá þurfa landeigendur auðvitað góðan tíma til að meta hvort þeir eigi hagsmuna að gæta á þeim svæðum sem ríkið gerir kröfur til,“ segir Sigmar og að hans sögn er stefnt að því að ljúka málunum á næsta ári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert