Miðinn skilaði rúmum 20 milljónum

Miðinn var keyptur á N1 Borgartúni.
Miðinn var keyptur á N1 Borgartúni. mbl.is

Fyrsti vinningur Lottó gekk út í kvöld og var heppnin með þeim sem keypti miðann í N1 Borgartúni. Sá heppni er fyrir vikið 21.235.170 krónum ríkari.

Einn hlaut annan vinning Lottó eða 531.010 og var miðinn sá keyptur í Krambúðinni við Tryggvagötu á Selfossi. 

Engin hlaut fyrsta vinning jókersins, en fimm heppnir hrepptu annan vinninginn og fá hver um sig 100.000 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert