Mörg hundruð bænaljós tendruð í minningu Bryndísar

Fjölskylda, vinir og kunningjar sóttu minningarstundina sem og aðrir sem …
Fjölskylda, vinir og kunningjar sóttu minningarstundina sem og aðrir sem vildu minnast Bryndísar og votta samúð sína. mbl.is/Hákon

Hundruð sóttu minningarstund í Lindakirkju í dag til að minnast Bryndísar Klöru sem lést eftir hnífstunguárás á Menningarnótt. 

Séra Guðni Már Harðarson, sóknarperstur í Lindakirkju, segir hundruð manns hafa sótt minningarstundina. 

„Mörg hundruð bænaljós voru tendruð.“

mbl.is/Hákon

Fjölskylda, vinir og kunningjar sóttu minningarstundina sem og aðrir sem vildu minnast Bryndísar og votta samúð sína.

Allur gangur var á hve lengi fólk staldraði við og séra Guðni segir að það hafi verið nær stanslaust streymi manna í og úr kirkjunni. 

Vinkonur Bryndísar sátu margar hverjar alla minningarstundina, frá tólf til fimm, að sögn séra Guðna. 

mbl.is/Hákon

Hann minnir á Minningarsjóð Bryndísar Klöru sem er í umsjón KPMG og Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er verndari sjóðsins. 

Hægt er að finna nánari upplýsingar um sjóðinn í meðfylgjandi færslu á Facebook-síðu Lindakirkju. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert